Spurningarnar koma frá spurningaleik á netinu sem starfræktur var í áraraðir. Ýmsir aðilar gáfu spurningar í safnið sem voru yfirfarnar og flokkaðar eftir getu á þeim tíma. Undir lokin innihélt leikurinn tæplega 12.000 spurningar. Til viðmiðunar má nefna að upprunalega Trivial Pursuit spilið innihélt 2.400 spurningar.
Ekki liggur fyrir nákvæmur uppruni allra spurninga né nöfn allra sem lagt hafa hönd á plóginn. Þó er vert að nefna þungavigtina:
- Sveinn Steinarsson
- Valur Freyr Steinarsson
- Svavar Kjarrval
Ef þér finnst þitt nafn vanta máttu gjarnan hafa samband. Sama gildir ef þú vilt ánafna spurningar í safnið.
Spurningarnar eru á svokölluðu CSV sniðmáti í skránni questions.csv.
Dálkanúmer | Valfrjálst | Lýsing |
---|---|---|
1 | Nei | Flokkanúmer |
2 | Já | Undirflokkur ef til staðar |
3 | Nei | Erfiðleikastig: 1: Létt, 2: Meðal, 3: Erfið |
4 | Já | Gæðastig: 1: Slöpp, 2: Góð, 3: Ágæt |
5 | Nei | Spurningin |
6 | Nei | Svarið |
Flokkanúmer | Flokkanafn |
---|---|
1 | Almenn kunnátta |
2 | Náttúra og vísindi |
3 | Bókmenntir og listir |
4 | Saga |
5 | Landafræði |
6 | Skemmtun og afþreying |
7 | Íþróttir og tómstundir |
Spurningarnar eru misgóðar og eflaust eru einhverjar arfavitlausar. Allar viðbætur og leiðréttingar eru vel metnar. Besta leiðin til að koma slíku á framfæri er að opna Issue eða búa til Pull request. Þeir sem treysta sér ekki til að nota GitHub geta sent mér tölvupóst á [email protected], sem verður sennilega ekki svarað um hæl.
Þeir sem vilja nota spurningar úr þessu safni geta skoðað vefsíðuna Trivia.is. Þar má velja spurningar í spurningaleik eftir meðal annars flokki og styrk. Tilvalið fyrir Pub Quiz, Zoom Quiz og aðrar eins samkomur meðal vina og samstarfsfólks.
Sveinn Steinarsson hannaði og forritaði viðmótið.
Spurningarnar eru gefnar út undir opnu leyfi (CC BY 4.0). Það felur í sér að öllum er frjálst að afrita og dreifa þeim á öllum hugsanlegum sniðmátum. Einnig breyta þeim, bæta við og jafnvel selja. Allt er leyfilegt svo lengi sem vísun í þessa síðu (https://github.com/sveinn-steinarsson/is-trivia-questions) fylgir með skýrum hætti.